NOTE: This article is more than 5 years old.

26 janúar 2011

/

Markaðsfé ferðamála til Íslandsstofu


Iðnaðarráðherra og Friðrik Pálsson við undirritun samningsins
Iðnaðarráðherra og Friðrik Pálsson við undirritun samningsins

Í dag undirrituðu Katrín Júlíusdóttir  iðnaðarráðherra og Friðrik Pálsson formaður stjórnar Íslandsstofu samning til fimm ára um flutning markaðsverkefna iðnaðarráðuneytis og Ferðamálastofu til Íslandsstofu.

Með þessum samningi lýkur áratugalöngu og afar farsælu markaðsstarfi Ferðamálaráðs og Ferðamálastofu sem skilað hefur hálfri milljón ferðamanna hingað til lands og gert ferðaþjónustuna að einni af þremur mikilvægustu útflutningsgreinum þjóðarinnar.

Ferðamálastofa mun nú beina sjónum sínum alfarið að uppbyggingu innviða ferðaþjónustunnar með verkefnum á sviði vöruþróunar, rannsókna og umhverfismála auk þess sem stofnunin fer með leyfis- og tryggingamál ferðaskrifstofa lögum samkvæmt.

Iðnaðarráðuneytið bindur miklar vonir við að enn betri árangur náist með þessu breytta fyrirkomulagi, ekki síst á sviði vetrarferðamennsku en Ferðamálastofa vinnur nú þegar að fjölbreyttum klasaverkefnum á því sviði. Þá er ekki síst tilgangurinn með þessari breytingu að ná fram umtalsverðri hagræðingu með því að beina markaðsstarfi allra tflutningsgreina í einn farveg á vegum Íslandsstofu og utanríkisþjónustunnar í góðu samstarfi við atvinnulífið í landinu.

Samningur iðnaðarráðuneytisins og Íslandsstofu