NOTE: This article is more than 5 years old.

21 febrúar 2011

/

Kolbeinn Marteinsson er nýr aðstoðarmaður iðnaðarráðherra


Kolbeinn Marteinsson
Kolbeinn Marteinsson

Kolbeinn Marteinsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður iðnaðarráðherra og tekur hann við af Arnari Guðmundssyni.  

Kolbeinn lauk BA námi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 2002 og Meistaragráðu í almannatengslum frá University of Stirling árið 2004.

Kolbeinn hefur undanfarin ár unnið  við markaðs- og kynningarmál hjá Skaparanum auglýsingastofu. 

Kolbeinn er í sambúð með Hörpu Katrínu Gísladóttur og eiga þau þrjú börn.