NOTE: This article is more than 5 years old.
03 mars 2011
/
Brautargengi hefur virkjað kraft 850 kvenna ... hvað skyldu það vera mörg teravött!

Brautargengi er 15 vikna sérsniðið námskeið á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands fyrir athafnakonur sem hafa viðskiptahugmynd sem þær vilja hrinda í framkvæmd. Frá árinu 1998 hafa rúmlega 850 konur útskrifast úr Brautargengi og þar með skrifað heildstæða viðskiptaáætlun í kringum ákveðna hugmynd. Þessa stundina eru þrjú Brautargengisnámskeið í gangi, á Akureyri, Reykjanesi og í Reykjavík, samtals með um 50 þátttakendur.
Í mars 2010 var Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands fengin til að kanna árangur Brautargengis og kom þá í ljós að af þeim hópi sem haft var samband við (þátttakendur frá 2003 - 2009) voru 55% í fyrirtækjarekstri og önnur 20% að þróa viðskiptahugmyndir sínar áfram, en starfsemi ekki hafin.
Þetta er vitanlega frábær árangur!
Þátttakendur á Brautargengi vinna með eigin viðskiptahugmynd á meðan á náminu stendur og koma hugmyndirnar úr ýmsum áttum. Flest fyrirtækin sem Brautargengiskonur hafa stofnað eru í verslun og þjónustu og allflest þeirra eru með 10 starfsmenn eða færri en þó nokkur eru með yfir 30 starfsmenn. Óhætt er því að segja að Brautargengisnám komi atvinnulífinu til góða þar sem kraftar kvenna nýtast í störfum sem annars hefðu ekki orðið til.
Meðal þeirra fyrirtækja sem unnið hefur verið að á Brautargengi mætti nefna: Verkefnalausnir (Elín Þorsteinsdóttir), Villimey (Aðalbjörg Þorsteinsdóttir), Járnsmiðja Óðins (Auður Hallgrímsdóttir), Aurum (Guðbjörg Kr. Ingvadóttir), Dýralæknamiðstöðin (Sif Traustadóttir), Bjarteyjarsandur (Arnheiður Hjörleifsdóttir), Gyðja collection (Sigrún Lilja Guðjónsdóttir), Úrvalshestar (Svanhildur Hall), Plan Arkitektar (Guðrún Ingvarsdóttir).