NOTE: This article is more than 5 years old.

04 apríl 2011

/

Fab Lab markar nýjan kafla í þróunarsögu vöruþróunar


Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag
Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag

Fab Lab (fabrication laboratory) er smiðja með stafrænum tækjum og tólum sem styttir leiðina frá hugmynd til vöru. Tæknin gefur notandanum möguleika á að hanna og prenta/skera út í þrívídd þannig að í verklok er tilbúin frumgerð að hlutnum.

Á Íslandi eru þrjár Fab Lab smiðjur; í Vestmannaeyjum, á Sauðarkróki og Akranesi. Smiðjurnar gegna mikilvægu hlutverki í því að efla tæknilæsi og tæknivitund og samfara því að auka þekkingu á stafrænum framleiðsluaðferðum og skapa tækifæri til nýsköpunar fyrir frumkvöðla, fyrirtæki og nemendur.  Í Fab Lab smiðjunni í Vestmannaeyjum sem rekin er af Nýsköpunarmiðstöð Íslands fer t.d. fram öflug kennsla á hverjum degi fyrir frumkvöðla og nemendur  grunn-  og framhaldsskólastigs á  degi hverjum og í hinum alþjóðlega Fab Academy sem er leiddur af prófessor Neil Gerschenfeld hjá MIT háskólanum í Boston.  

Dæmi um fyrirtæki sem nýta sér Fab Lab til þróunar:

Síbyr  framleiðir m.a. fatahengi með Íslandskorti þ.a. þú getur hengt upp fötin þín á á Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum eða Reykjavík.

ReMake Electric nýtir sér örtölvu tækniþekkingu úr Fab Lab við áframhaldandi þróun á rafskynjurum.

Sigva margmiðlun vinnur að þróun margmiðlunartorgs

Vélaverkstæðið Þór nýtir sér Fab Lab smiðjuna til þróunar á búnaði til fiskvinnslu.

Tengill á heimasíðu Fab Lab

Tengill á You Tube

Fulltrúar Sibyr sem framleiði fatahengi með Íslandskorti

 

 

 

 

 

 

Síbyr  framleiðir m.a. fatahengi með Íslandskorti þ.a. þú getur hengt upp fötin þín á á Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum eða Reykjavík.