NOTE: This article is more than 5 years old.

04 apríl 2011

/

Orkusparnaðarátak 2011 – fundir með íbúum á Snæfellsnesi

Orkustofnun og Orkusetur munu á næstunni efna til opinna funda í sveitarfélögum þar sem rafmagn er notað til húshitunar. Fyrstu þrír fundirnir verða haldnir á Snæfellsnesi í þessari viku

  •         Þriðjudagur 5. apríl í Snæfellsbæ kl. 17.30
  •         Miðvikudagur 6. apríl í Grundarfirði kl. 20
  •         Fimmtudagur 7. apríl í Eyja- og Miklaholtshreppi kl. 20:30

Íbúar á rafhituðum svæðum þurfa að greiða talsvert hærri húshitunarreikning en aðrir landsmenn þrátt fyrir að rafhitun sé að hluta til niðurgreidd af ríkinu. Markmiðið með þessari fundarherferð er fyrst og fremst að kynna fyrir notendum leiðir til að lækka orkureikninginn.

Á fundunum verða haldnir 3 fyrirlestrar sem þeir Sigurður Ingi og Benedikt sjá um:

     Húshitunarkostnaður á köldum svæðum og fyrirkomulag niðurgreiðslna

     Almennur orkusparnaður

     Umhverfisvæn orkuöflun, varmadælur ofl.