NOTE: This article is more than 5 years old.

13 apríl 2011

/

Efnahags- og viðskiptaráðuneytið flytur á morgun fimmtudag 14. apríl, í framtíðarhúsnæði að Skuggasundi 3 í Reykjavík


Efnahags- og viðskiptaráðuneyti Skuggasundi 3
Efnahags- og viðskiptaráðuneyti Skuggasundi 3

Vegna flutninganna verður þjónusta ráðuneytisins í lágmarki þann dag þar sem tölvur og símar starfsmanna verða aftengd og síðan tengd aftur á nýjum stað. Vonast er til að flutningarnir valdi ekki óþægindum fyrir þá sem þurfa að leita til ráðuneytisins. Hugsanlegt er að einhver truflun geti orðið á starfseminni í kringum flutningana en afgreiðslan verður opin og símanúmerið er það sama: 545 8800.

Sjá nýtt aðsetur efnahags-og viðskiptaráðuneytis. (kort)

Afgreiðslutími ráðuneytis er frá klukkan 8.30 til 16.