NOTE: This article is more than 5 years old.

14 apríl 2011

/

Innanríkisráðuneytið flytur í Sölvhólsgötu 7

Vegna flutnings og frágangs í nýju aðsetri innanríkisráðuneytinu að Sölvhólsgötu 7 í dag má búast við truflun á starfsemi ráðuneytisins. Afgreiðslan er þó opin milli kl. 8.30 og 16 og síminn þar er 545 9000.


Kort
kort_a_vef_flutningar

Tölvur og símar flestra starfsmanna ráðuneytisins hafa verið aftengd og gera má ráð fyrir að ekki verði allir komnir í samband fyrr en undir lok dags eða í fyrramálið. Um leið og beðist er velvirðingar á truflunum sem verða kunna er vonast til að þær valdi ekki umtalsverðum óþægindum. Ítrekað skal að skiptiborð og afgreiðsla eru opin og tekið er við skilaboðum til starfsmanna.