NOTE: This article is more than 5 years old.

02 maí 2011

/

Nýstofnuðu Atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja er ætlað að snúa vörn í sókn!

Atvinnuþróunarfélag Suðurnesja var formlega sett á laggirnar 27. apríl og leggja iðnaðarráðuneytið og Byggðastofnun því til 20 mkr. á ári. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum aflar mótframlaga og sér að öðru leyti um fjármögnun starfseminnar eins og tíðkast í atvinnuþróunarfélögum annarra landshluta. 

Með samningnum er lagður grundvöllur að fjórum stöðugildum atvinnuráðgjafa. Verkefni félagsins verða fjölbreytt, á sviði atvinnu og byggðaþróunar auk verkefna á sviði nýsköpunar.  Þannig mun félagið sjá um rekstur vaxtarsamnings á Suðurnesjum. Atvinnuþróunarfélag Suðurnesja mun taka þátt í og vera í forystu um uppbyggingu þekkingarseturs á Suðurnesjum með þeim stofnunum á Suðurnesjum sem eru hluti þekkingarsamfélagsins á svæðinu. Gert er ráð fyrir að í þessu samstarfi taki þátt stofnanir stoðkerfisins sem starfa á vegum ráðuneyta, menntastofnanir innan og utan svæðis sem og aðrir aðilar sem stutt geta við atvinnulíf og vöxt á svæðinu.  Skal félagið beita sér fyrir sem nánustu samstarfi allra aðila í stoðkerfinu á Suðurnesjum og koma þannig í veg fyrir tvíverknað og árekstra. Ætlunin er að félagið verði fyrsti viðkomustaður þeirra sem til stoðkerfisins leita og vísa aðilum þangað sem aðstoð er að fá í hverju tilviki.

Eru miklar vonir bundnar við að starfsemin muni styðja við og flýta fyrir atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum.