NOTE: This article is more than 5 years old.

04 maí 2011

/

Nú fá Austfirðingar hugbúnaðarlausnir heima í héraði


Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag
Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag

AN Lausnir er nýstofnað hugbúnaðarfyrirtæki á Egilsstöðum og er þar með fyrsta hugbúnaðarfyrirtækið sem stofnað er á Austurlandi. Verkefni fyrirtækisins eru bæði innanlands og utan og eru starfsmenn alls fjórir.

AN Lausnir er stofnað út frá Austurneti sem er klasasfyrirtæki í upplýsingatækni sem starfað hefur með mjög góðum árangri í þrjú og hálft ár og skapað 5-6 stöðugildi vítt og breitt á Austurlandi. Þá hefur fyrirtækið komið sér upp öflugu tengslaneti og á samstarf við 15-20 verktaka og fyrirtæki sem tengjast upplýsingatækni.