NOTE: This article is more than 5 years old.

05 maí 2011

/

Þýðing á ESB löggjöf hefur mikla þýðingu á Austurlandi


Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag
Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag

Fyrirtækið Sagnabrunnur ehf. á Seyðisfirði mun gegna veigamiklu hlutverki þegar kemur að því að þýða texta sem tengjast ESB löggjöf yfir á okkar ástkæru og ylhýru íslensku. Fyrirtækið gerði nýlega samning við Þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins til eins árs um að sjá um hluta þýðingarvinnunar - og hægt er að framlengja samninginn þrisvar sinnum. Hjá Sagnabrunni munu átta til tíu þýðendur sinna þessu starfi og búa þeir flestir á Austurlandi - eða hafa sterk tengsl þangað - og eru staðsettir á Seyðisfirði, Egilsstöðum, í nágrenni Borgarfjarðar eystri og í Reykjavík.

Þýðendurnir hófu samstarf í gegnum verkefni Sagnabrunns ehf. sem hófst arið 2010 og ber nafnið Þjálfun þýðenda á Austurlandi, atvinnusköpun í heimabyggð. Verkefnið var styrkt árin 2010 og 2011 af Vaxtarsamningi Austurlands. Gerði Sagnabrunnur ehf., fyrir hönd þýðendanna, samning við Þýðingasetur Háskóla Íslands um fjarnám í námskeiðinu Evrópuþýðingum, sem kennt var frá janúar til apríl 2011.

Í febrúar lagði hópurinn inn tilboð vegna þýðinga á ESB löggjöf hjá Þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins. Tilboðið var samþykkt eftir að hópurinn hafði undirgengist og staðist hæfnispróf og námskeið hjá ráðuneytinu. Búið er að fjárfesta í tölvum og tækjabúnaði og ekkert að vanbúnaði að takast á við þessar þýðingarmiklu þýðingar.