NOTE: This article is more than 5 years old.
11 maí 2011
/
Ísland undirritar Evrópusamning um baráttuna gegn ofbeldi gagnvart konum

Ísland var í dag á meðal fyrstu 13 aðildarríkja Evrópuráðsins til að undirrita samning um að koma í veg fyrir og berjast gegn ofbeldi gagnvart konum og heimilisofbeldi.
Samningurinn er fyrsti bindandi alþjóðasamningurinn sem tekur heildstætt á baráttunni gegn ofbeldi gegn konum. Hann er lagarammi um vernd kvenna gegn ofbeldi, forvarnarstarf, saksókn á hendur gerendum og útrýmingu ofbeldis gegn konum og heimilisofbeldis. Eftirfylgni með innleiðingu samningsins í hverju landi fyrir sig er einnig hluti hans.
Fastafulltrúi Íslands hjá Evrópuráðinu, Berglind Ásgeirsdóttir sendiherra, undirritaði samninginn fyrir Íslands hönd á ráðherrafundi Evrópuráðsins, sem nú stendur yfir í Istanbúl í Tyrklandi. Auk Íslands undirrituðu Austurríki, Finnland, Frakkland, Grikkland, Lúxemborg, Portúgal, Slóvakía, Spánn, Svartfjallaland, Svíþjóð, Tyrkland og Þýskaland samninginn.
Nánari upplýsingar um samninginn er að finna hér: