NOTE: This article is more than 5 years old.
26 maí 2011
/
Friðun nokkurra opinberra bygginga
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur að fengnum tillögum húsafriðunarnefndar og í samræmi við ákvæði laga um húsafriðun nr. 104/2001 ákveðið að friða eftirtaldar byggingar.
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur að fengnum tillögum húsafriðunarnefndar og í samræmi við ákvæði laga um húsafriðun nr. 104/2001 ákveðið að friða eftirtaldar byggingar:
- Landspítalinn við Hringbraut. Friðunin nær til þess hluta spítalans, sem byggður var á árunum 1926 til 1930.
-
Gamli flugturninn við Reykjavíkurflugvöll. Friðunin nær til ytra byrðis turnsins og burðarvirkis hans. -
Laugarnesskóli í Reykjavík. Friðunin nær til ytra byrðis hússins og miðrýmis í öðrum áfanga, sem byggður var á árunum 1942-1945. -
Sæbólskirkja á Ingjaldssandi. Friðunin nær til kirkjunnar í heild sinni, þ.e. ytra og innra byrðis auk fastra innréttinga. -
Thorvaldsensstræti 2, Gamli Kvennaskólinn í Reykjavík. Friðunin nær til ytra byrðis framhússins. - Ingólfsstræti 2A, Íslenska óperan. Friðunin nær til ytra byrðis hússins auk anddyris, forsalar aðalsalar, hliðarsvala og aðalsalar (áhorfendasalar).
Nánari upplýsingar veitir: Ragnheiður H. Þórarinsdóttir á skrifstofu menningarmála