NOTE: This article is more than 5 years old.
24 júní 2011
/
Afhenti forseta Serbíu trúnaðarbréf

Gunnar Snorri Gunnarsson afhenti þann 22. júní sl. forseta Serbíu, Boris Tadic, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra, með aðsetur í Berlín.
Eftir afhendingu ræddu Serbíuforseti og sendiherra samskipti landanna, umsókn beggja um aðild að Evrópusambandinu og fleiri mál. Þá átti sendiherra einnig fund með Vuk Jeremic, utanríkisráðherra Serbíu þar sem umsóknarferlið að ESB og efnahagsmál voru til umræðu.