NOTE: This article is more than 5 years old.

08 júlí 2011

/

Embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Vesturlands

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Atla Harðarson í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Vesturlands til fimm ára.


Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Atla Harðarson í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Vesturlands til fimm ára.

Atli hefur starfað sem aðstoðarskólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands frá árinu 2001. Þar á undan starfaði hann sem framhaldsskólakennari frá árinu 1986, að mestu við Fjölbrautaskóla Vesturlands.

Atli hefur meðal annars meistaragráðu í heimspeki frá Brown háskóla í Bandaríkjunum og hóf doktorsnám í menntunarfræðum við Háskóla Íslands haustið 2009.