NOTE: This article is more than 5 years old.

19 ágúst 2011

/

Tillaga til þingsályktunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða í opið 12 vikna umsagnar- og samráðsferli


Tillagan kynnt.
Tillagan kynnt.

 

Allt frá árinu 1999 hefur staðið yfir vinna við gerð rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða með það að markmiði að ná framtíðarsýn og sátt meðal þjóðarinnar um  verndunar- og virkjanamál.

Niðurröðun virkjunarhugmynda í verndarflokk, biðflokk og nýtingarflokk, samkvæmt lögum um rammaáætlun, liggur nú fyrir og byggir hún á viðamiklu starfi verkefnisstjórnar og faghópa Rammaáætlunar. Samhliða því hafa verið gerð drög að þingsályktunartillögu sem felur í sér fyrrgreinda flokkun og fer hún nú í opið 12 vikna umsagnar- og samráðsferli meðal þjóðarinnar.

Í þingsályktunartillögunni er tekin afstaða til 69 virkjanahugmynda og af þeim fara 20 í verndarflokk, 22 í nýtingarflokk og 27 í biðflokk, en í síðastnefnda flokknum eru eingöngu þær hugmyndir sem þörf er talin á að rannsaka frekar til að meta hvort svæðið skuli fara í verndar- eða nýtingarflokk.

Kynning á þingsályktunartillögunni markar upphafið að 12 vikna samráðs- og kynningarferli þar sem almenningi og hagsmunaaðilum gefst kostur á að koma með athugasemdir og skila inn umsögnum um flokkunina í heild sinni, ákveðin svæði eða stakar virkjunarhugmyndir.

Í samráðs- og kynningarferlinu er jafnframt kallað eftir umsögnum vegna umhverfismats áætlana.

Tillagan kynnt.Til að auðvelda umsagnarferlið og tryggja gegnsæi þess hefur verið opnað vefsvæði á slóðinni http://www.rammaaaetlun.is/ þar sem tekið er við umsögnum. Umsagnirnar verða birtar jafnóðum á sama vef þar sem þær verða aðgengilegar öllum. Frestur til að skila inn umsögnum rennur út á miðnætti föstudaginn 11. nóvember.

Að loknu kynningarferlinu munu iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra ganga frá endanlegri tillögu til þingsályktunar um vernd og orkunýtingu landsvæða og leggja hana fram á Alþingi.

Þingsályktunartillöguna og ýmis fylgiskjöl henni tengdri ásamt Umhverfismati áætlana má nálgast á heimasíðu rammaáætlunar, http://www.rammaaaetlun.is/.