NOTE: This article is more than 5 years old.

26 ágúst 2011

/

Ísland útskrifast - Samstarf Íslands og AGS um efnahagsáætlun komið á leiðarenda

Stjórn AGS samþykkti í Washington í dag síðustu endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands sem þar með verður fyrsta ríkið til að útskrifast úr slíkri áætlun í yfirstandandi alþjóðafjármálakreppu.

Stjórn AGS samþykkti efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda þann 19. nóvember 2008. Með afgreiðslu stjórnarinnar í dag kemur síðasti hluti lánafyrirgreiðslunnar að upphæð 51 milljarður króna til útgreiðslu. Áður hefur verið afgreidd upphæð að jafngildi 200 milljarðar króna. Þar til viðbótar kemur lánatökuréttur frá Norðurlöndunum og Póllandi í tengslum við áætlunina samtals 150 milljarðar króna.

Samstarf Íslands og AGS  hefur vakið athygli fyrir árangur á meginsviðum. Stöðugleiki í hagkerfi náðist eftir „hinn fullkomna storm" en þannig lýsti AGS stöðunni á Íslandi í október 2008. Fjármálakerfi hefur verið reist að nýju, ríkisfjármál aðlöguð að gjörbreyttum aðstæðum og endunýjaður aðgangur ríkisins að alþjóðlegum mörkuðum var staðfestur í velheppnuðu skuldabréfaútboði í júní.   Meginmarkmið efnahagsáætlunarinnar hafa náðst.

Helstu markmið áætlunarinnar hafa verið:

  • Efnahagslegur stöðugleiki
  • Aðlögun ríkisútgjalda
  • Varðstaða um útgjöld til velferðarmála til að milda áhrif kreppunnar
  • Endurreisn fjármálakerfisins
  • Lausn skuldavanda heimila og fyrirtækja
  • Endurreisn trúverðugleika á íslenskt efnahagslíf

Stöðugleiki tryggður

  • Efnahagur þjóðarinnar hefur tekið við sér.  Spár gera ráð fyrir tæplega 3% hagvexti á árinu.
  • Krónan hefur náð stöðugleika og styður vel við útflutningsgreinar. AGS mælti með setningu gjaldeyrishafta í fyrsta sinn í samstarfinu við Ísland.  Með þeim var hægt að ná tökum á verðbólgunni og ná stöðugleika í gengi krónunnar. Stýrivextir eru nú 4,5% en fóru hæst í 18% í nóvember 2008.
  • Umtalsverður afgangur er af vöru- og þjónustuviðskiptum við útlönd
  • Atvinnuleysi er enn hátt en minnkar hraðar en búist var við og hefur ekki verið lægra frá hruni. 
  • Kaupmáttur fer vaxandi á ný og hefur ekki verið hærri frá hruni.

Árangur í ríkisfjármálum

  • Mikill árangur hefur náðst í ríkisfjármálum.
  • Búið er að ná tökum á skuldum ríkisins. Hlutfall skulda af VLF fer lækkandi á næstu árum.
  • Ríkisfjármálin hafa verið tekin föstum tökum með það í huga að tryggja sjálfbæra skuldastöðu.
  • Aðlögun ríkisfjármálanna hefur falist jöfnum höndum í lækkun útgjalda og hækkun tekna.
  • Stærðargráða aðlögunaraðgerða frá miðju ári 2009 sem dregið hafa úr hallarekstri ríkissjóðs umfram það sem annars hefði orðið er um 10% af landsframleiðslu. 
  • Í ljósi þess árangurs sem hefur náðst í ríkisfjármálum og til að styðja betur við efnahagsbatann hefur ríkisfjármálaáætlunin nú verið endurskoðuð og aðlögð að aðstæðum í samstarfi við AGS. Snýr það m.a. að svigrúmi til að mæta áhrifum kjarasamninganna frá sl. vori og árin 2014 - 2015 bætast við. Ný ríkisfjármálaáætlun til meðallangs tíma verður birt samhliða framlagningu fjárlagafrumvarps 1. október næstkomandi.

Endurreisn fjármálakerfisins

Fjármálakerfið hefur verið endurreist að stærstum hluta eftir algert hrun þess. Kostnaður ríkisins hefur orðið mun lægri en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir. Regluverk og eftirlit hefur verið endurskoðað frá grunni og heldur það starf áfram.

Víðtækar aðgerðir til úrlausnar skuldavanda heimila og fyrirtækja

Meðal brýnna verkefna sem efnahagsáætlunin hefur tekið til er endurskipulagning skulda heimila og fyrirtækja. Víðtækt samkomulag milli lánveitenda á íbúðalánamarkaði og stjórnvalda náðist í lok árs 2010 um lækkun skulda yfirveðsettra heimila (110% leiðin), auknar vaxtabætur og vaxtaniðurgreiðslur o.fl. Á sama tíma var gert samkomulag um endurskipulagningu skulda lítilla og meðalstórra fyrirtækja, nefnd Beina brautin. Þessar aðgerðir hafa vakið athygli víða um heim.

Endurnýjað traust

Í kjölfar falls bankanna hrundi traust á íslenskum þjóðarbúskap. 

Skuldatryggingarálag á Ísland hækkaði mikið við hrunið og varð hæst 1.400 punkar. Til marks um að traust hefur verið endurheimt má nefna að álagið er nú  vel undir 300 punktum sem er  við eða undir meðaltali Vestur-Evrópuríkja. Endurnýjað traust sannaðist með áþreifanlegum hætti í afar vel heppnuðu ríkisskuldabréfaúboði sem sýndi áhuga erlendra fárfesta og vakti mikla alþjóðlega athygli.

Samstarfið við sjóðinn veitti leið Íslands með setningu neyðarlaga og þrotameðferð banka trúverðugleika og skapaði forsendur til samninga við kröfuhafa um endurfjármögnun þeirra með léttari byrðum fyrir ríkissjóð.