NOTE: This article is more than 5 years old.

01 desember 2011

/

Dagskrá á 150 ára fæðingarafmæli Hannesar Hafstein sunnudaginn 4. desember 2011

Í tilefni af 150 ára fæðingarafmæli Hannesar Hafstein, sunnudaginn 4. desember nk., verður Ráðherrabústaðurinn við Tjarnargötu opinn almenningi. Jafnframt verður dagskrá í Þjóðmenningarhúsinu tileinkuð minningu Hannesar.

Dagskrá:

 

Kl.12.00
Ráðherrabústaðurinn við Tjarnargötu opinn almenningi frá kl. 12 – 15

  • Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur, fræðir gesti

Kl.15.00
Dagskrá í Þjóðmenningarhúsi tileinkuð minningu Hannesar Hafstein

  • Kynnir: Þórunn Erna Clausen, leikkona

  • Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, flytur ávarp

  • Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur, flytur erindi um Hannes Hafstein

  • Arnar Jónsson, leikari, flytur ljóð eftir Hannes Hafstein

  • Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur, fjallar um skáldið Hannes Hafstein

  • Nemendur frá Listaháskóla Íslands flytja lög við ljóð eftir Hannes Hafstein