NOTE: This article is more than 5 years old.
02 desember 2011
/
Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Evrópubandalaginu.
Með vísan til samnings milli Íslands og Evrópubandalagsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og til reglugerðar dags. 30. nóvember 2011, um úthlutina, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á landbúnaðarvörum, upprunnum í ríkjum Evrópubandalagsins og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. janúar – 31. desember 2012:
| Vöruliður: | Vara | Tímabil | Vörumagn | Verðtollur | Magntollur |
| kg | % | kr./kg | |||
| 0202 | Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst | 01.01.11 - 31.12.12 | 100.000 | 0 | 0 |
| 0203 | Svínakjöt, fryst | 01.01.11 - 31.12.12 | 200.000 | 0 | 0 |
| 0207 | Kjöt af alifuglum, fryst | 01.01.11 - 31.12.12 | 200.000 | 0 | 0 |
| ex 0210 | Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig fínmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum (**) | 01.01.11 - 31.12.12 | 50.000 | 0 | 0 |
| ex 0406 | Ostur og ystingur (**) | 01.01.11 - 31.12.12 | 20.000 | 0 | 0 |
| 0406 | Ostur og ystingur | 01.01.11 - 31.12.12 | 80.000 | 0 | 0 |
| 1601 | Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum | 01.01.11 - 31.12.12 | 50.000 | 0 | 0 |
| 1602 | Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum | 01.01.11- 31.12.12 | 50.000 | 0 | 0 |
(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 510/2006 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.
Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg.
Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar vegna innflutnings á landbúnaðarvörum nr. 509/2004.
Skriflegar umsóknir skulu berast til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 15:00 föstudaginn 9. desember 2011.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu,
2. desember 2011.