NOTE: This article is more than 5 years old.

03 febrúar 2012

/

Embætti landlæknis ráðleggur brottnám allra PIP brjóstafyllinga


Embætti landlæknis
Embætti landlæknis

Í ljósi nýrrar skýrslur sérfræðingahópsins SCENIHR um PIP brjóstafyllingar telur landlæknir ráðlegt að PIP brjóstafyllingar verði fjarlægðar úr öllum konum sem þær bera.  

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir mat landlæknis byggt á faglegum forsendum og að velferðarráðuneytið muni bregðast við í samræmi við þær ábendingar sem þar komi fram. Unnið verður að skipulagningu viðbragða og framkvæmd aðgerða á næstu dögum og mun ráðherra taka málið fyrir á fundi ríkisstjórnar næstkomandi þriðjudag.