NOTE: This article is more than 5 years old.
04 apríl 2012
/
Íslenskt orkustjórnunarkerfi fær alþjóðlega viðurkenningu ... straumurinn liggur til ReMakeElectric!

Íslenska nýsköpunarfyrirtækið ReMake Electric hafnaði í öðru sæti í flokknum um Smart Meter Data Management and Solution Award 2012 í keppninni European Smart Metering Awards 2012. Dómarar í flokknum leituðu eftir kerfi sem skilar nákvæmum upplýsingum til notenda, dreifiaðila orku og orkusala ásamt því að hafa mikla vaxtarmöguleika og hafa nýjungar til að meðhöndla verulega stórar gagnasendingar. Fyrsta sætið fékk eMeter-lausnin frá Siemens sem sérhæfir sig í gagnasendingum frá Snjallmælum.
eTactica-orkustjórnunarkerfi gerir notendum kleift að skilja, stjórna og hagræða rafmagnsnotkun sinni til að auka öryggi í rekstri, bæta framleiðni rafmagns og spara orku.
ReMake Electric hefur hlotið styrki frá Tækniþróunarsjóði og Impru. Þá er gaman að geta þess að fyrirtækið sigraði í frumkvöðlakeppni Innovit um Gulleggið 2010 ásamt því að sigra í Hugmyndasamkeppni N1 2009 en ReMake komst einnig í úrslit í Global Cleantech Open í Kísildal Kalifoníu 2010 og Nordic Cleantech Open í Trolleholm í Svíþjóð 2011.