NOTE: This article is more than 5 years old.
04 maí 2012
/
Siðferðileg viðmið og siðareglur Stjórnarráðsins
Samhæfingarnefnd um siðferðileg viðmið fyrir stjórnsýsluna kynnti í dag fyrstu ársskýrslu sína. Í skýrslunni er farið yfir starf nefndarinnar frá því hún var skipuð haustið 2010 á grundvelli laga um Stjórnarráð Íslands. Megináherslan hefur verið á að stuðla að setningu siðareglna og kynningu þeirra og innleiðingu. Siðareglur fyrir ráðherra voru settar í mars 2011 og í gær gaf forsætisráðherra út siðareglur fyrir starfsfólk Stjórnarráðs Íslands í kjölfar víðtæks samráðs.
- Fyrsta ársskýrsla samhæfingarnefndar um siðferðileg viðmið fyrir stjórnsýsluna -
Traust í krafti fagmennsku - Kynning á siðareglum á blaðamannafundi
- Siðareglur ráðherra
- Siðareglur starfsfólks Stjórnarráðs Íslands