NOTE: This article is more than 5 years old.
14 júní 2012
/
Málþing um svæðahagfræði norðurslóða

Hjálmar W. Hannesson, sendiherra og fulltrúi Íslands í embættismannanefnd Norðurskautsráðsins kynnti áherslu Íslands varðandi nýtingu og verndun lifandi sjávarauðlinda á norðurslóðum gær á málþingi á vegum The International Institute for Strategic Studies í London. Málþingið sóttu fjölmargir sérfræðingar og embættismenn er fást við málefni svæðisins. Hjálmar lagði áherslu mikilvægi svæðisbundinnar fiskveiðistjórnunar, sjálfbærar veiðar og að ítrustu varúðarsjónarmiða yrði gætt í tengslum við aukin efnahagsumsvif á svæðinu.