NOTE: This article is more than 5 years old.

25 júní 2012

/

Efnahags- og viðskiptaráðherra á þingmannafundi Evrópuráðsins 25. - 29. júní

Á þingmannafundi Evrópuráðsins sem stendur yfir í Strassborg dagana 25. - 29. þ.m. tekur Steingrímur J. Sigfússon efnahags- og viðskiptaráðherra þátt í sérstakri umræðu 26. júní um banka- og efnahagskreppuna í Evrópu.  Fjallar hann um stefnumörkun og ráðstafanir sem gripið hefur verið til hér á landi til að bregðast við fjármálahruninu og árangur í þeim efnum.  Í umræðunni í Evrópuráðinu verður sjónum m.a. beint að því hvort í niðurskurði ríkisútgjalda felist ógn gagnvart lýðræðinu og félagslegum réttindum og hvort hagsmunir þeirrar kynslóðar sem nú er að vaxa úr grasi verði fyrir borð bornir.