NOTE: This article is more than 5 years old.
17 september 2012
/
Degi íslenskrar náttúru fagnað í blíðskaparveðri

Dagur íslenskrar náttúru var í gær, 16. september, haldinn hátíðlegur víða um land en þetta er í annað sinn sem deginum er fagnað.
Dagurinn hófst á Veðurstofu Íslands þar sem Svandís Svavarsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra las veðurfréttir í beinni útsendingu á Rás 1. Rættist þar með gamall draumur um að fá tækifæri til að spreyta sig á hlutverki veðurfréttamannsins. Vakti uppátækið að vonum nokkra athygli og var ekki að heyra annað en að ráðherra kæmist ágætlega frá orðasamböndum á borð við „úrkomu í grennd“ og „þurrt að mestu“.
Frá Veðurstofunni lá leiðin í útvarpshúsið við Efstaleiti þar sem umhverfis- og auðlindaráðherra spjallaði við Sirrý á Rás 2 og ræddi við hlustendur í beinni útsendingu. Bar þar ýmislegt er varðar náttúru Íslands á góma, allt frá fögru fjallaútsýni að íslensku tófunni.
Ráðherra fékk einnig leiðsögn í birkifræsöfnun og –sáningu á Keldnaholti en Landgræðsla ríkisins, Skógrækt ríkisins og Landbúnaðarháskóli Íslands stóðu saman í gær að kennslu og fræðslu fyrir almenning um söfnun og sáningu birkifræs. Vegna góðs fræárs hafa Hekluskógar biðlað til einstaklinga, skóla og félagasamtaka um að safna birkifræi af trjám á höfuðborgarsvæðinu og víðar um sunnan og vestanvert landið og mun Endurvinnslan hf taka við fræinu í móttökustöðvum á höfuðborgarsvæðinu og á Selfossi.
Hátíðardagskrá umhverfis- og auðlindaráðherra fór svo fram úti undir berum himni við Árbæjarsafn í blíðskaparveðri en samkoman hófst kl. 14:00. Fór ráðherra þar með ávarp og Páll Ásgeir Ásgeirsson flutti hugleiðingar um gildi náttúrunnar og ágang manna á hana. Að því loknu afhenti ráðherra Hjörleifi Guttormssyni Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti fyrir mikilsvert framlag hans til verndar náttúru Íslands og Rúnari Pálmasyni Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, fyrir vandaða umfjöllun hans um akstur utan vega.