NOTE: This article is more than 5 years old.

24 september 2012

/

Styrkir til háskólanáms í Finnlandi skólaárið 2013 - 2014

 Íslenskum námsmönnum gefst kostur á að sækja um styrki sem stjórnvöld í  Finnlandi  bjóða fram til háskólanáms eða rannsóknarstarfa þar í landi háskólaárið 2013-2014.


Finnski fáninn
finnland

 Íslenskum námsmönnum gefst kostur á að sækja um styrki sem stjórnvöld í  Finnlandi  bjóða fram til háskólanáms eða rannsóknarstarfa þar í landi háskólaárið 2013-2014. Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver styrkur kemur í hlut Íslendinga. Styrkirnir eru ætlaðir til doktorsnáms, rannsókna og kennslu á háskólastigi. Umsóknir um styrki til doktorsnáms njóta forgangs.  Styrkir eru veittir til 3 - 9 mánaða og nemur styrkfjárhæðin 1200 evrum á mánuði.

  • Upplýsingar og eyðublöð er hægt að nálgast á á vefsíðu CIMO (Centret for International Mobility): 
  • Mennta- og menningarmálaráðuneytið framsendir umsóknir er uppfylla skilyrði sem nánar eru tilgreind í upplýsingum um styrkina og skulu umsóknir, ásamt fylgiskjölum, sendar ráðuneytinu.
  • Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2013.