NOTE: This article is more than 5 years old.

30 október 2012

/

Athugasemdir fjármála- og efnahagsráðuneytis við skýrsludrög Ríkisendurskoðunar vegna fjárhags- og mannauðskerfis ríkisins

Eins og fram kemur í athugasemdum fjármála- og efnahagsráðuneytisins um skýrsludrög Ríkisendurskoðunar vegna fjárhags- og mannauðskerfis ríkisins, sem sendar voru Ríkisendurskoðun, birtir ráðuneytið athugasemdirnar á vef sínum.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið fékk skýrsludrög Ríkisendurskoðunar um fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins til umsagnar þann 27. september sl. og sendi stofnuninni athugasemdir sínar þann 12. október sl.

Í þeim kemur fram að ráðuneytið muni birta athugasemdirnar í fullri lengd þegar lokaskýrsla Ríkisendurkoðunar um úttekt á fjárhags- og mannauðskerfum ríkisins verður gefin út. Ríkisendurskoðun hefur nú gefið út skýrsluna og birtir ráðuneytið hér með athugasemdir sínar.

Athugasemdir ráðuneytisins er jafnframt að finna í viðauka 3 með skýrslunni.

Athugasemdir fjármála- og efnahagsráðuneytisins við skýrsludrög Ríkisendurskoðunar vegna fjárhags- og mannauðskerfisins.
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um kaup og innleiðingu á fjárhags- og mannauðskerfi fyrir ríkið