NOTE: This article is more than 5 years old.
01 febrúar 2013
/
Úthlutun styrkja til verkefna 2013

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur úthlutað styrkjum til verkefna er stuðla að uppbyggingu á sviði umhverfismála.
Á árinu 2012 voru gerðar breytingar á úthlutun styrkja til félaga, samtaka og einstaklinga á þann veg að Alþingi hætti úthlutunum á styrkjum til ýmissa verkefna til félaga, samtaka og einstaklinga eins og verið hefur. Alþingi ákvarðar áfram umfang styrkja til einstakra málaflokka en úthlutun þeirra er á höndum ráðuneyta, lögbundinna sjóða, menningarráða landshluta eða annarra sem sjá um og bera ábyrgð á viðkomandi málaflokkum.
Í verkefnaúthlutun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins voru 38,4 milljónir króna til ráðstöfunar. Heildarupphæð umsókna um verkefnastyrki nam rúmlega 136 milljónum króna.
Eftirfarandi umsækjendur og verkefni hlutu styrki fyrir árið 2013:
| Bandalag íslenskra skáta | Græn skátaheimili | 1.000.000 |
| Eldvötn - samtök um náttúruvernd í Skaftárhreppi | Miðlun fræðslu um náttúru Skaftárhrepps | 200.000 |
| Félag Umhverfisfræðinga á Íslandi | Félag umhverfisfræðinga á Íslandi | 400.000 |
| Framkvæmdaráð Snæfellsness | Átak til fjölgunar vottaðra ferðaþjónustuaðila á Snæfellsnesi | 500.000 |
| Framtíðarlandið | Náttúrukortið | 800.000 |
| Fuglaverndarfélag Íslands | Fræðslurit um haförninn | 400.000 |
| Fuglaverndarfélag Íslands | Umsókn um styrk til uppfærslu IBA skráarinnar | 500.000 |
| Fuglaverndarfélag Íslands | 50 ára afmælissýning Fuglaverndar | 500.000 |
| Fuglaverndarfélag Íslands | Umsókn um styrk til að sækja Heimsþing BirdLife International | 350.000 |
| Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs | Land-nám: Endurheimt birkiskóga suðvesturhornsins með skólaæskunni | 1.100.000 |
| Grænn apríl, félagasamtök | Grænn apríl 2013 | 400.000 |
| Hjólafærni á Íslandi | Hjólum til framtíðar 2013 - réttur barna til hjólreiða | 300.000 |
| Hjólafærni á Íslandi | Hjólakortið Ísland | 1.000.000 |
| Jón Baldur Hlíðberg | Vísindaleg Flóra Íslands | 1.200.000 |
| Jón S. Ólafsson | Flóra og fána ferskvatns á Íslandi – rit um vatnalíf | 1.000.000 |
| Katla jarðvangur ses | Katla jarðvangur - erlent og innlent samstarf | 300.000 |
| Kirkjubæjarstofa ses | Örnefnaarfur - rafræn skráning | 800.000 |
| Landgræðslufélag Héraðsbúa | Landgræðslustörf á Fljótsdalshéraði-stöðvun jarðvegsrofs og uppgræðsla | 800.000 |
| Landvernd | Bláfánaverkefnið | 2.500.000 |
| Landvernd | Fræðsla ungmenna og vistheimt á örfoka landi á Suðurlandi | 1.000.000 |
| Landvernd | Aðgerðir og þróun aðgerðaramma í loftslagsmálum með sveitarfélögum | 2.800.000 |
| Melrakkasetur Íslands | Refirnir á Hornströndum | 1.800.000 |
| Náttúran ehf. | Grænt Íslandskort - app, uppfærslur og nýtt vefviðmót | 3.100.000 |
| Náttúrufræðistofa Kópavogs | Vöktun á vatnsgæðum og lífríki Þingvallavatns | 3.800.000 |
| Náttúrusetur á Húsabakka | Friðland fuglanna | 500.000 |
| Náttúruverndarsamtök Íslands | Niðurstöður Ríó +20 | 600.000 |
| Reykjanes jarðvangur | Reykjanes jarðvangur í erlendu samstarfi | 400.000 |
| Sesseljuhús Umhverfissetur | Sesseljuhús Umhverfissetur | 1.500.000 |
| Skátafélagið Ægisbúar | Leiðbeinendaþjálfun í umhverfisvernd | 500.000 |
| Skorradalshreppur | Gerð hættumats og viðbragðsáætlana vegna gróðurelda í Skorradal | 500.000 |
| Skotveiðifélag Ísland | Rjúpnatalning | 100.000 |
| Skógræktarfélag Heiðsynninga | Skógræktarreitur í Hrossholti | 500.000 |
| Skógræktarfélag Íslands | Yfirfærsla Skógræktarritsins á stafrænt form og miðlun á vef. | 500.000 |
| Skógræktarfélag Íslands | Opinn skógur | 2.400.000 |
| Skógræktarfélag Rangæinga | Uppgræðsla og skógrækt | 500.000 |
| Skógræktarfélag Siglufjarðar | Stígagerð, kurlun, og bætt aðgengi og umhverfi í aðalrjóðri Skógræktarinnar við Leyningsá | 700.000 |
| Skógræktarfélag Skilmannahrepps | Álfholtsskógur Hvalfjarðarsveit | 100.000 |
| Surtseyjarfélagið | Surtseyjarfélagið, rekstur á afmælisári | 1.000.000 |
| Umhverfishópur Stykkishólms | Átak gegn notkun plastpoka | 150.000 |
| Umhverfissamtökin Blái herinn | Hreinn ávinningur | 1.000.000 |
| Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni | Náttúruskynjun | 900.000 |