NOTE: This article is more than 5 years old.

06 febrúar 2013

/

Íslensk minkaskinn seldust á háu verði


Björn Halldórsson, Steingrímur J. Sigfússon og Tage Pedersen
Björn Halldórsson, Steingrímur J. Sigfússon og Tage Pedersen

Steingrímur J. Sigfússon var í gær viðstaddur uppboð á loðdýraafurðum í Kaupmannahöfn, Copenhagen Fur,  en uppboðið stendur yfir í þessari viku. Uppboðið er eitt hið stærsta í heiminum og þar hittast kaupendur og seljendur alls staðar að til að eiga viðskipti með loðdýraafurðir. Íslenskir loðdýrabændur selja flestir sínar afurðir  á þessu uppboði.

Verð á loðdýraafurðum er sögulega hátt um þessar mundir í flestum afurðaflokkum og fékkst mjög gott verð fyrir íslensku skinnin enda þykja gæði þeirra vera afburða góð.
Steingrímur hitti þá Björn Halldórsson á Akri í Vopnafirði sem jafnframt er formaður loðdýrabænda og Einar Einarsson frá Skörðugili í Skagafirði og átti einnig fund með Tage Pedersen framkvæmdastjóra Copenhagen Fur. Minnkaskinn