NOTE: This article is more than 5 years old.

21 febrúar 2013

/

Forseti norska Stórþingsins í heimsókn


Dag Terje Andersen og Steingrímur J. Sigfússon
Dag Terje Andersen og Steingrímur J. Sigfússon

Miðvikudaginn 20. febrúar kom Dag Terje Andersen forseti norska Stórþingsins og þingmaður verkamannaflokksins, ásamt þingmönnum og starfsfólki  norska Stórþingsins  til fundar við Steingrím J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra. Forsetinn er hér á landi í opinberri heimsókn Alþings. Fundurinn stóð í klukkustund og voru málefni Íslands og Noregs rædd.