NOTE: This article is more than 5 years old.

04 apríl 2013

/

Fyrirhugað er að breyta lögum nr. 42/2009 um visthönnun vöru, hagsmunaðilum og öðrum sem láta sig málið varða er nú gefið tækifæri á því að skila inn athugasemdum við frumvarpið.

Frumvarpið er samið í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu í samstarfi við Neytendastofu sem fer með markaðseftirlit og framkvæmd laga um visthönnun nr. 42/2009. Núgildandi lög eru rammalöggjöf sem setur upp grundvöll fyrir frekari reglusetningu. Breytingarnar sem felast í frumvarpinu eru ekki miklar en breytingin á gildissviðinu felur í sér meira svigrúm til frekari reglusetningar.

Veigamestu breytingarnar sem lagðar eru til í þessu frumvarpi eru:
1.    Breytingar á gildissviði laganna. Núgildandi lög gilda um vörur sem nota orku en breytingin felur í sér að lögin munu gilda um vörur sem eru orkutengdar. Með orkutengdum vörum er átt við vöru sem nýtir eða tengist orkunotkun (rafmagni, jarðefnaeldsneyti eða endurnýjanlegum orkugjafa) til að virka sem skyldi eða vara til flutnings og mælingar á slíkri orku þ.m.t. hlutir sem nýta orku eða tengjast orkunotkun.
2.    Bætt er við markmið laganna að þau eigi að tryggja samræmi í visthönnun orku á Evrópska efnahagssvæðinu og frjálst flæði á slíkum vörum á innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins.
3.    Bætt er við hugtökunum  „setja á markað“ og „taka í notkun“. Þessi hugtök skipta miklu máli því lögin gilda um vöru sem er sett á markað eða tekin er í notkun. Þá eru þessi hugtök í fleiri tilskipunum Evrópuréttar og það skiptir máli fyrir réttarstöðu fólks hvenær vara telst sett á markað eða tekin í notkun.
4.    Eftirlitið með lögunum verði alfarið í höndunum á Neytendastofu en ekki skipt á milli Neytendastofu og lögreglu eins og nú er. Neytendastofu eru fengin úrræði í samræmi við þau úrræði sem hún hefur í öðrum lögum til að tryggja að eftirlitið fullnægi kröfum sem gerðar eru í tilskipun 2009/125/EB.

Óskað er eftir að athugasemdir berist eigi síðar en 25. apríl 2013 í tölvupóstfangið [email protected] eða bréflega til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík.

Frumvarpsdrög um breytingu á lögum  nr. 42/2009