NOTE: This article is more than 5 years old.
13 apríl 2013
/
Starf sérfræðings á skrifstofu vísinda og háskóla
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á skrifstofu vísinda
og háskóla. Um er að ræða fullt starf.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á skrifstofu vísinda
og háskóla. Um er að ræða fullt starf. Leitað er að háskólamenntuðum einstaklingi með reynslu og þekkingu á háskóla- og vísindastarfsemi, búi yfir þekkingu og hæfni í öflun, greiningu og miðlun upplýsinga og sé vel ritfær á íslensku og ensku. Góð kunnátta í einu Norðurlandamáli er æskileg. Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og
hæfni í mannlegum samskiptum eru og nauðsynlegir kostir.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun greiðast samkvæmt launakerfi Félags
háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins. Nánari upplýsingar veitir Stefán Baldursson,
skrifstofustjóri.
- Umsóknir með upplýsingum um menntunog starfsferil sendist mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknir mega einnig berast á netfangið [email protected].
- Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
- Við ráðningar í störf hjá mennta- og menningarmálaráðuneyti er tekið mið af jafnréttisáætlun ráðuneytisins.
- Umsókn gildir í 6 mánuði.
- Umsóknarfrestur er til og með maí 5. 2013.