NOTE: This article is more than 5 years old.

19 apríl 2013

/

Samningur um tannlækningar barna samþykktur


Bætt tannheilsa
Bætt tannheilsa

Samningur Sjúkratrygginga Íslands og Tannlæknafélags Íslands (TÍ) um barnatannlækningar var samþykktur með 90% greiddra atkvæða á fundi félagsins í gær. Frá þessu er greint á vef TÍ. Samningurinn tekur gildi 15. maí næstkomandi. 

Samningurinn var undirritaður 11. apríl síðastliðinn með fyrirvara um samþykki félagsfundar TÍ. Samkvæmt frétt á vef TÍ var félagsfundurinn óvenju fjölmennur. „Tannlæknar eru almennt ánægðir með samninginn og þá kjarabót sem hann hefur í för með sér fyrir barnafjölskyldur“ segir í fréttinni.

Liðið er 21 ár frá því að síðast var gerður heildstæður samningur um tannlækningar en sá samningur rann út í árslok 1998.