NOTE: This article is more than 5 years old.

26 apríl 2013

/

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar á kjördag

Á vef sýslumanna, syslumenn.is, má sjá upplýsingar frá embættum sýslumanna um það hvert kjósendur geti snúið sér til að greiða atkvæði utan kjörfundar á kjördag víðs vegar um landið.

Þeir sem kjósa utan kjörfundar á kjördag annars staðar en í Reykjavík verða sjálfir að sjá til þess að atkvæði þeirra komist í einhverja kjördeild þess kjördæmis þar sem þeir eru á kjörskrá.

Utankjörfundaratkvæði skal vera komið í hendur hlutaðeigandi kjörstjórnar fyrir lok kjörfundar á kjördag svo að hægt sé að taka það til greina við kosninguna.