NOTE: This article is more than 5 years old.
23 maí 2013
/
40 verkefni hlutu styrk úr Sprotasjóði skólaárið 2013-2014
Sprotasjóður er sameiginlegur fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og er hlutverk sjóðsins að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.
Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir skólaárið 2013-2014. Alls bárust 115 umsóknir til sjóðsins og fengu 40 verkefni styrk að upphæð rúmlega 45. millj. kr.
Sprotasjóður er sameiginlegur fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og er hlutverk sjóðsins að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.
Áherslusvið sjóðsins voru að þessu sinni:
- Mat á námi með hliðsjón af nýjum aðalnámskrám.
- Jafnrétti í skólastarfi.
- Kynjafræði, kynheilbrigði og klám; – í samhengi við grunnþætti menntunar.
Stjórn sjóðsins, sem skipuð er fulltrúum frá Kennarasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samstarfsnefnd háskólastigsins og mennta- og menningarmálaráðuneytis, mat umsóknir og gerði tillögur til mennta- og menningarmálaráðherra um styrkveitingar. Ákveðið var, eins og áður sagði, að veita styrki til 40 verkefna að upphæð rúmlega 45. millj. kr.
Styrkirnir dreifðust með eftirfarandi hætti milli skólastiga og landshluta
| Höfuðborgar-svæðið | Reykjanes | Suðurland | Vesturland | Norðurl.-eystra | Austurland | Fjöldi | Upphæð | |
| Leikskólar | 3 | 2 | 1 | 1 | 7 | 9900000 | ||
| Grunnskólar | 8 | 1 | 5 | 2 | 16 | 16130000 | ||
| Framhaldsskólar | 11 | 1 | 2 | 14 | 15230000 | |||
| Þvert á skólastig | 1 | 1 | 1 | 3 | 3900000 | |||
| Samtals | 22 | 4 | 1 | 2 | 8 | 2 | 40 | 45160000 |