NOTE: This article is more than 5 years old.
16 ágúst 2013
/
Auglýsing um próf til viðurkenningar bókara
Með vísan til laga nr. 145/1994 um bókhald, er fyrirhugað að halda próf til viðurkenningar bókara 2013 sem hér segir:
- Reikningshald 14. október – prófið hefst kl. 15 og stendur til kl. 18
- Skattskil og upplýsingatækni 2. desember - prófið hefst kl. 15 og stendur til kl. 18
- Raunhæft verkefni 9. desember - prófið hefst kl. 14 og stendur til kl. 19
Um efnissvið prófanna vísast til 3. gr. reglugerðar nr. 535/2012 um próf til viðurkenningar bókara og prófefnislýsingu sem birt er á heimasíðu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.
Próftökugjald fyrir hvert próf er kr. 25.000.
Próftökugjald skal greiða í síðasta lagi fjórum vikum fyrir hvern auglýstan prófdag. Við skráningu skal staðfest að fullnægt sé skilyrðum 43. gr. laga nr.145/1994 um að próftökumaður sé lögráða og hafi forræði á búi sínu. (að búið hafi ekki verið tekið til gjaldþrotaskipta)