NOTE: This article is more than 5 years old.

26 ágúst 2013

/

Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn 2. október næstkomandi

Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn miðvikudaginn 2. október næstkomandi  á Hilton Reykjavík Nordica og hefst klukkan 16:00. Ársfundurinn verður með svipuðu sniði og áður.

Boð á fundinn verða send út fyrri hluta septembermánaðar.

Til fundarins verða boðaðir  framkvæmdastjórar sveitarfélaga eða staðgenglar þeirra, fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga, landshlutasamtaka sveitarfélaga og aðrir nánir samstarfsaðilar Jöfnunarsjóðs.