NOTE: This article is more than 5 years old.
03 september 2013
/
Fundur strandríkja um norsk-íslenska síld í London 3.-4. september lokið

Í dag lauk tveggja daga strandríkjaviðræðum Íslands, Noregs, Rússlands, Færeyja og Evrópusambandsins, um norsk-íslenska síld í London. Reglubundinn fundur strandríkjanna er samkvæmt venju haldinn í október, en Ísland boðaði sérstaklega til þessa fundar vegna óska frá Færeyjum og Evrópusambandinu vegna þeirrar stöðu sem uppi er um skiptingu stofnsins.
Eins og kunnugt er hafa Færeyingar einhliða hækkað kvóta sinn, sem þeir hafa samkvæmt samningi frá 2007, úr rúmum 5% í 17%, og í kjölfar þess hefur Evrópusambandið beitt Færeyjar viðskiptaþvingunum sem íslensk stjórnvöld hafa mótmælt harðlega.
Undirbúningur er hafinn að vinnunefnd vísindamanna með það að markmiði að kortleggja dreifingu síldar á öllum lífsstigum í Norðaustur-Atlantshafinu. Stefnt er að formlegri stofnun vinnunefndarinnar á næsta fundi í október.
Fyrir fundinn var búist við að Færeyingar myndu leggja fram tillögur að nýrri skiptingu aflaheimilda. Engar slíkar tillögur voru lagðar fram og því ljóst að staðan í deilunni er óbreytt, en næsti fundur um deiluna verður haldinn í október eins og áður sagði.
Formaður íslensku sendinefndarinnar var Kristján Freyr Helgason.