NOTE: This article is more than 5 years old.
09 september 2013
/
Framkvæmdastjóri Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) á ráðstefnu um samkeppnismál

Þann 27. september nk. munu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Samkeppniseftirlitið og áfrýjunarnefnd samkeppnismála halda alþjóðlega ráðstefnu undir yfirskriftinni „The Future Ain´t What it Used to Be“ – 20 years of Competition Law and the Challenges Ahead.
Ráðstefnan verður haldin á Radisson Hótel Sögu og á henni munu um 30 einstaklingar úr stjórnmálum, atvinnulífinu, fræðasamfélaginu og stjórnkerfinu fjalla um samkeppnismál í litlu hagkerfi og þær áskoranir sem við blasa. Um morguninn verður meðal annars fjallað um hvernig unnt sé að bæta skilvirkni markaða og stöðuna eftir hina alþjóðlegu fjármálakreppu. Á fjórum vinnustofum eftir hádegi verður fjallað um samkeppni í opinberri þjónustu, varnaðaráhrif sekta í samkeppnislagabrotum, framkvæmd samkeppnislaga á fjarskiptamarkaði og endurreisn efnahagslífsins í kjölfar bankahrunsins.
Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er Angel Gurría framkvæmdastjóri Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD). Angel Gurría hefur stýrt Efnahags- og framfarastofnuninni frá árinu 2006 en hann var áður utanríkisráðherra og fjármálaráðherra Mexikó.
Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis en skráning er á samkeppni.is.
Dagskrá:
08:00 – 08:30 Registration / Coffee
Conference chair: Kristín Haraldsdóttir, Chairman of the Board of the
Competition Authority
08:30 – 09:40 - Ragnheiður Elín Árnadóttir, Minister of Industry and Commerce
Keynote Speaker:
- Angel Gurría, Secretary-General of the OECD
- John M. Connor, Professor Emeritus of Economics, Purdue University, US
09:40 – 10:00 Break
10:00 – 10:45
- Þorsteinn Víglundsson, Confederation of Icelandic Employers (SA)
- Christine Meyer, Director General of the Norwegian Competition Authority.
- Páll Gunnar Pálsson, Director General of the Icelandic Competition Authority
10:50 – 11:45 Discussion with Angel Gurría and other speakers
Moderator: Ari Kristinn Jónsson, President of Reykjavik University
Nánari upplýsingar