NOTE: This article is more than 5 years old.
18 september 2013
/
Hátíðarhöld á Degi íslenskrar náttúru

Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, kom víða við á Degi íslenskrar náttúru, sem haldinn var hátíðlegur á mánudag, 16. september. Þetta er í þriðja sinn sem deginum er fagnað og var efnt til ýmiskonar viðburða um land allt af því tilefni.
Að loknu viðtali í Morgunútvarpi Rásar tvö heimsótti ráðherra framleiðslufyrirtækið Íslenska hollustu, þar sem eigendurnir, Eyjólfur Friðgeirsson og Bergþóra Einarsdóttir tóku á móti honum ásamt starfsfólki sínu. Fyrirtækið sérhæfir sig í framleiðslu ýmissa afurða úr villtri íslenskri náttúru. Meðal annars má nefna þarakrydd, þarasósur, hollustusnakk úr hafinu, jurtate, sultur og berjasaft, rjómaosta, bætiefni og húðvörur en uppistaðan í framleiðslunni eru þarar, söl, fjallagrös og ber.
Næst lá leiðin í Menntaskólann í Kópavogi þar sem umhverfis- og auðlindaráðherra setti umhverfisviku skólans og kynnti sér aðstæður og kennslu á matvælasviði skólans í fylgd skólastjórnenda. Dagskrá umhverfisvikunnar er fjölbreytt þar sem nemendum er boðið upp á ýmiskonar atburði í tengslum við umhverfis- og náttúruvernd. Má þar nefna kynningar á þjóðgörðum, sýningu á heimildarmynd um plastpokanotkun, umræður um matarsóun og kynningu á Bláa hernum sem m.a. hefur staðið fyrir miklum hreinsunarátökum úti í náttúru landsins.
Ráðherra heimsótti einnig starfsmenn Veiðimálastofnunar við bakka Úlfarsár í Reykjavík þar sem hann fræddist um uppeldisaðstæður laxfiska í ám á Íslandi.
Hátíðardagskrá umhverfis- og auðlindaráðherra fór svo fram í Elliðavatnsbænum í Heiðmörk en samkoman hófst kl. 13:30. Fór ráðherra þar með ávarp og fluttar voru hugleiðingar Hjalta Þórs Vignissonar, bæjarstjóra á Höfn í Hornafirði, um samspil náttúru og manna. Að því loknu afhenti ráðherra Páli Steingrímssyni Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins fyrir áralanga heimildamyndagerð um náttúru Íslands og Vigdísi Finnbogadóttur Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti fyrir mikilsvert framlag hennar til náttúruverndar á Íslandi.