NOTE: This article is more than 5 years old.
02 október 2013
/
Langtímaáætlun um tækjakaup Landspítala
Fjármála- og efnahagsráðherra og heilbrigðisráðherra munu í tengslum við gerð fjárlaga 2014 vinna að gerð nýrrar tækjakaupaáætlunar fyrir Landspítala og Sjúkrahúsið á Akureyri til ársins 2017. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu þeirra.
Sameiginleg yfirlýsing fjármála- og efnahagsráðherra og heilbrigðisráðherra:
Í tengslum við gerð fjárlaga 2014 munu fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra vinna að gerð nýrrar tækjakaupaáætlunar fyrir Landspítala og Sjúkrahúsið á Akureyri til ársins 2017. Þetta er í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem lögð er áhersla á viðhald og endurbætur á núverandi húsa- og tækjakosti Landspítalans.
Áætlunin verður unnin í samráði við starfsfólk Landspítalans og Sjúkrahússins á Akureyri og kynnt ríkisstjórn og fjárlaganefnd fyrir 2. umræðu fjárlaga.
Á undanförnum árum hafa framlög til tækjakaupa verið töluvert lægri en nauðsynlegt er talið. Til marks um það lækkaði föst fjárveiting til tækjakaupa á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri um nær helming að raungildi frá árinu 2006 til 2013.
Ekki síst í ljósi þessa verður ekki hjá því komist að ráðast í gerð langtímaáætlunar um fjárfestingar í tækjakosti fyrir sjúkrahúsin.