NOTE: This article is more than 5 years old.

28 október 2013

/

Innritun í framhaldsskóla á vorönn 2014

Innritun í dagskóla fyrir vorönn 2014 fer fram á menntagatt.is dagana 1. nóvember til 30. nóvember 2013. 


Einstakir skólar kunna að bjóða upp á lengra innritunartímabil og eru upplýsingar um það veittar á vefsíðu viðkomandi skóla. Innritun í dagskóla fyrir vorönn 2014 fer fram á menntagatt.is dagana 1. nóvember til 30. nóvember 2013. 
Einstakir skólar kunna að bjóða upp á lengra innritunartímabil og eru upplýsingar um það veittar á vefsíðu viðkomandi skóla. Rafrænt umsóknareyðublað og nauðsynlegar upplýsingar um innritunina má nálgast á menntagatt.is. Námsmatsstofnun hefur umsjón með innritun og eru nánari upplýsingar veittar í síma 550 2400.

Umsóknir um nám í dagskóla


Umsækjendur sem ekki hafa veflykil tiltækan geta sótt hann á menntagatt.is. Þegar umsækjendur hafa fengið veflykil opnast þeim aðgangur að innrituninni. Nemum sem koma erlendis frá er bent á að setja sig í samband við þá skóla sem þeir hyggjast senda umsókn.

Umsóknir um nám í kvöldskóla og fjarnám

Innritun í kvöldskóla, fjarnám og annað en nám í dagskóla fer fram í þeim framhaldsskólum sem hafa það í boði. Skólarnir auglýsa umsóknarfrest sjálfir og leggja til umsóknareyðublöð. Umsækjendum er bent á að snúa sér til viðkomandi skóla. Upplýsingar um framhaldsskólana má finna á menntagatt.is

  • Allar nánari upplýsingar um innritun á vorönn 2014 eru veittar í framhaldsskólunum. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið [email protected]