NOTE: This article is more than 5 years old.
05 nóvember 2013
/
Vel heppnuð fræðsluþing Vitundarvakningar um land allt
Lokið er röð fræðsluþinga, sem haldin voru í októbermánuði, á vegum Vitundarvakningar um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi.

Lokið er röð fræðsluþinga, sem haldin voru í októbermánuði, um land allt á vegum Vitundarvakningar um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi. Þátttaka var góð og mættu um 830 manns á þau. Fyrsta fræðsluþingið var á Sauðárkróki hinn 1. október þar sem um 120 þátttakendur voru mættir. Síðasta fræðsluþingið var haldið í Reykjavík með um 150 þátttakendum.
Hlutverk Vitundarvakningar er að kortleggja, samhæfa og stuðla að umfangsmiklu forvarnarstarfi í málaflokknum í samstarfi við viðkomandi aðila, huga að rannsóknum á ofbeldi gegn börnum og stuðla að aukinni samfélagsvitund um málaflokkinn. Fræðsla og forvarnir beinast fyrst og fremst að börnum, fólki sem vinnur með börnum, réttarvörslukerfinu og almenningi.
Að Vitundarvakningu standa þrjú ráðuneyti; innanríkisráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti og velferðarráðuneyti. Ráðherrar þessara ráðuneyta mættu á flest þingin.
Á fræðsluþinginu í Hafnarfirði sátu allir ráðherrarnir í pallborði, þ.e. Eygló Harðardóttir húsnæðis- og félagsmálaráðherra, Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra og Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra. Auk þeirra voru fimm fyrirlesarar á þingunum sem fjölluðu um einkenni þolenda kynferðisbrots, skaðlega kynhegðun barna og klám, rannsókn kynferðisbrota og annarra brota gegn börnum, réttindi barna og myndina Fáðu já auk annars fræðsluefnis.
- Fundurinn í Hafnarfirði var tekinn upp og hægt er að skoða upptökuna á vef Vitundarvakningar .
Fræðsluþingin voru endurgjaldslaus og stóðu öllum opin. Fólk sem vinnur með og í þágu barna og ungmenna var sérstaklega hvatt til að mæta.
Frá fræðsluþingi Vitundarvakningarinnar á Hvolsvelli.