NOTE: This article is more than 5 years old.

29 nóvember 2013

/

Mál nr. 80/2013, úrskurður 29. nóvember 2013


Mál nr. 80/2013


Eiginnafn: Dynþór

Hinn 29. nóvember 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 80/2013 en erindið barst nefndinni 22. nóvember:

Eiginnafnið Dynþór (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Dynþórs, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Dynþór (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.