NOTE: This article is more than 5 years old.

29 nóvember 2013

/

Mál nr. 83/2013, úrskurður 29. nóvember 2013


Mál nr. 83/2013


Eiginnafn: Fíus

Hinn 29. nóvember 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 83/2013 en erindið barst nefndinni 28. nóvember:

Eiginnafnið Fíus (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Fíusar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Fíus (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.