NOTE: This article is more than 5 years old.

03 desember 2013

/

Óháð úttekt vegna netöryggis almennings

Innanríkisráðuneytið hefur ákveðið að láta gera óháða úttekt á netöryggi almennings vegna þess alvarlega öryggisbrests sem átti sér stað vegna tölvuinnbrots hjá Vodafone um síðustu helgi.

Tilgangur úttektarinnar er að greina heildstætt stöðu netöryggis á Íslandi, ábyrgð fjarskiptafyrirtækja, eftirlit opinberra stofnana, gæði lagarammans og réttarstöðu neytenda. Niðurstöður úttektarinnar skulu liggja fyrir í lok janúar.