NOTE: This article is more than 5 years old.

06 janúar 2014

/

Veiðimálastofnun flyst undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið


Veiðimálastofnun
Veiðimálastofnun

Um áramótin var Veiðimálastofnun sett undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið en frá árinu 2012 hafði hún verið tilheyrt umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Þar áður hafði hún heyrt undir ráðuneyti sjávarútvegsmála.

Veiðimálastofnun er rannsóknarstofnun á sviði ferskvatnsfiska og lífríkis þeirra og starfar með það að markmiði að hámarka sjálfbæra nýtingu lax- og silungsveiða hér á landi og þjónustar hún veiðifélögin í landinu með ráðgjöf um veiði. Að þessu leyti er hlutverk Veiðimálastofnunar sambærilegt við hlutverk Hafrannsóknastofnunar. Þess má geta að Veiðimálastofnun og Hafrannsóknastofnun hafa samstarf um rannsóknir á villtum laxi í sjó.

Veiðimálastofnun er með starfsstöðvar í Reykjavík, á Hvanneyri, Sauðárkróki, Hvammstanga og Selfossi. Stofnunin starfar samkvæmt lögum nr. 59 frá 14. júní 2006.

Samstarf veiðifélaga og Veiðimálastofnunar hefur verið mikið og farsælt allt frá stofnun Veiðimálastofnunar, en rekja má starfsemi Veiðimálastofnunar allt til ársins 1946 þegar Þór Guðjónsson var skipaður í embætti veiðimálastjóra.
Veiðifélög sinna mikilvægum þáttum í rannsóknum Veiðimálastofnunar er lúta m.a. að skráningu á veiðitölum. Samstarfið hefur m.a. beinst að rannsóknum sem hafa leitt til hóflegrar nýtingar á veiðiám og veiðivötnum og telst ástand laxastofna í íslenskum ám það besta við Norður- Atlantshaf. Tekist hefur að hámarka nýtingu auðlindarinnar undir merkjum sjálfbærni. Íslenskum laxastofnum hefur ekki hnignað á undanförnum árum, en víða í nágrannalöndum okkar er villtur lax í útrýmingarhættu m.a. vegna of mikils veiðiálags. Þessi góða staða laxastofnanna er m.a. tilkomin vegna rannsókna stofnunarinnar og samstarfs við veiðifélögin. Veiðifélögin hafa lagt á það ríka áherslu að stofnunin verði aftur færð undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.