NOTE: This article is more than 5 years old.
10 janúar 2014
/
Breytingar á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda
Umhverfis- og auðlindaráðuneyti óskar eftir umsögnum vegna frumvarps til breytinga á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda. Með breytingunum er verið að ljúka innleiðingu ESB gerða, einkum tilskipunar um aðstöðu í höfnum til að taka á móti úrgangi skipa.
Meginmarkmið tilskipunarinnar er að draga úr losun úrgangs frá skipum í sjó, einkum ólöglegri losun. Með breytingunni er aukin áhersla á aðstöðu í höfnum til móttöku úrgangs frá skipum og er gert ráð fyrir að hafnir hefji gjaldtöku vegna slíkrar úrgangslosunar. Er þetta gert til að mæta kröfum tilskipunarinnar.
Umsagnarferlið stendur til 24. janúar 2014. Umsögnum má skila á netfangið [email protected] eða í bréfpósti til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.
- Frumvarp til laga um breytingu á lagaákvæðum er varða losun og móttöku úrgangs frá skipum
- Lög nr. 22/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda
- Tilskipun 200/59/EB um aðstöðu í höfnum til að taka á móti úrgangi skipa og farmleifum