NOTE: This article is more than 5 years old.

06 maí 2014

/

OECD birtir efnahagsspá um Ísland


Bjarni Benediktsson á ráðherrafundi OECD. Fremstur á myndinni, fyrir miðju, er Angel Gurría, framkvæmdastjóri OECD. Mynd:OECD/Michael Dean
Ráðherrafundur

Hagvöxtur á Íslandi árið 2013 var umtalsvert meiri en búist var við, sem skýrist af vexti í útflutningi og ferðamennsku. Þetta kemur fram í skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, sem kom út í dag.

Í skýrslu stofnunarinnar er m.a. að finna yfirlit yfir þróun efnahagsmála á Íslandi árið 2013 og spá til tveggja ára.

Aukin atvinnusköpun og löggjöf um lækkun verðtryggðra fasteignaskulda heimilanna mun örva einkaneyslu á árinu og styðja enn frekar við efnahagsbatann, að mati OECD.

Economic Outlook May 2014 (skýrsla á ensku) 

Dreifirit frá blaðamannafundi OECD vegna skýrslunnar (á ensku)