NOTE: This article is more than 5 years old.

28 maí 2014

/

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar - kjörstaðir og opnunartímar

Í Reykjavík fer atkvæðagreiðsla ­utan kjörfund­ar fram í Laugardalshöll. Þar er opið alla daga frá klukk­an 10:00 – 22:00. Á kjördag verður opið frá klukkan 10:00 – 17:00 fyrir þá kjósendur sem búa utan höfuðborgarsvæðisins.

Á vefsíðu sýslumanna eru upplýsingar frá öllum sýslumannsembættum á landinu um þjónustu þeirra vegna atkvæðagreiðslu utan kjörfundar, kjörstaði og opnunartíma. Embættin eru talin upp í landfræðilegri röð umhverfis landið. Tengill á vefsíðu sýslumanna er hér.

Vert er að vekja athygli á eftirtöldum atriðum:

Öllum sem eru skráðir á kjörskrá er heimilt að greiða atkvæði utan kjörfundar hjá hvaða sýslumanni sem er, óháð búsetu eða lögheimili.

Ef atkvæðið er greitt hjá kjörstjóra í öðru umdæmi en því sem kjósandi er á kjörskrá þá annast og kostar hann sjálfur sendingu atkvæðisbréfs síns. Kjörstjóra er þó skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í póst en sendingin er eftir sem áður á kostnað kjósanda.

Nægjanlegt er að koma bréfi með utankjörfundaratkvæði í einhverja kjördeild þess sveitarfélags þar sem kjósandi er á kjörskrá.

Utankjörfundaratkvæði skal vera komið í hendur kjörstjórnar fyrir lok kjörfundar á kjördag svo að hægt sé að taka það til greina við kosninguna.

Sjá hér leiðbeiningar, bæði myndband og texta, um það hvernig kosning utan kjörfundar fer fram.