NOTE: This article is more than 5 years old.

01 júlí 2014

/

Umsækjendur um stöðu seðlabankastjóra

Með auglýsingu fjármála- og efnahagsráðuneytis, dags. 2. júní sl., var embætti seðlabankastjóra auglýst laust til umsóknar í samræmi við lög um Seðlabanka Íslands. Umsóknarfrestur rann út 27. júní sl. Tíu sóttu um stöðuna. 




Sérstök hæfnisnefnd hefur verið skipuð til að meta hæfni umsækjenda um stöðuna í samræmi við ákvæði laganna. 


Umsækjendur um embætti seðlabankastjóra:


Ásgeir Brynjar Torfason
Friðrik Már Baldursson
Haukur Jóhannsson
Íris Arnlaugsdóttir
Lilja Mósesdóttir
Már Guðmundsson
Ragnar Árnason
Sandra María Sigurðardóttir
Yngvi Örn Kristinsson
Þorsteinn Þorgeirsson